Kóngsins Köbenhavn
Fyrst ennþá eru einhverjir sem fylgjast með okkur er víst best að skrifa aðeins meira um ferðir okkar. Þessa stundina erum við staddar í Kaupmannahöfn hjá Salóme vinkonu okkar. Við erum búnar að hanga hjá henni í næstum fimm daga núna og ætlum að vera hér fram á miðvikudag. Í dag á Salóme afmæli og svo á Inger afmæli á morgun þannig að núna er allt á fullu í tiltekt og kökubakstri fyrir afmælisboðið sem verður á morgun. Við ætlum að baka barbapapaköku og marenstertu.
Við höfum ekki verið rosalega duglegar að skoða okkur um í Kaupmannahöfn en höfum þó kíkt á fréttaljósmyndasýningu, labbað um kirkjugarð og hverfið hér í kring og farið einu sinni á Strikið. Á Strikinu fengum við hálfgert sjokk þegar við löbbuðum inn í H&M því þar voru nánast bara Íslendingar, sem við vorum engan veginn að höndla. Við drifum okkur þessvegna út og reyndum að forðast alla Íslendinga sem við heyrðum í eftir það. Okkur skilst líka að flestir ef ekki allir Íslendingar sem búa í Kaupmannahöfn fari aldrei inn í H&M, nema þeir séu með heimþrá sem þeir þurfi að losna við. Við erum líka búnar að fara tvisvar í heimsókn til Önnu Helgu frænku Ástu. Hún bauð okkur öllum þremur í mat og bjó til handa okkur dýrindis sushi, danska páskaskinku með tropical ávöxtum úr dós, og súkkulaðiköku. Hún hafði mjög mikið fyrir þessu öllu saman og að launum urðu hún og Salóme fyrstu manneskjurnar til að fá að sjá allar myndirnar af ferðum okkar, en þær eru eitthvað um 1800.
Síðan við vorum í Frakklandi höfum við verið heldur betur duglegar að rúnta um Evrópu. Eftir Le Mans fórum við með lestum til Utrecht í Hollandi og heimsóttum Friðrik og Rakel kærustu hans. Við vorum hjá þeim tvær nætur og fengum að taka þátt í afmælispartýi hans þar sem hann átti afmæli daginn áður en við komum. Það var stuð og við fengum páskaegg. Utrect er rosalega sætur bær og þar er fullt af flottum skóbúðum sem selja kvenmannsskó upp í stærð 43. Það má því teljast kraftaverk að við skyldum ekki hafa keypt á okkur skó.
Eftir Utrect fórum við svo til Lúxemborgar til Rúnu og Krissa, foreldra Salóme og vinafólks Önnu og Ragga. Þar var tekið rosalega vel á móti okkur. Við fengum alltaf mjög gott að borða, gátum horft á Íslenskt sjónvarp, vorum með sér baðherbergi og heilt loft út af fyrir okkur. Við skoðuðum svo borgina, keyrðum til Frakklands og fórum á Da Vinci sýningu þar sem búið var að smíða allar uppfinningar karlsins, keyrðum um Moseldalinn og sáum bandarískar og þýskar hermannagrafir.
Næst fórum við svo til Álaborgar og ferðalagið þangað tók aðeins lengri tíma en við ætluðum okkur. Eftir næstum heilan dag á ferðalagi frá Lúx, vorum við komar til Hamborgar og neyddumst til að gista þar eina nótt. Svo vöknuðum við eldsnemma næsta morgun til að halda áfram og vorum loks komnar til Álaborgar upp úr 3 daginn eftir. Þar vorum við í tvær nætur heima hjá Gumma frænda Ingerar, Eydísi konu hans og Gunnari syni þeirra. Við fengum þar dýrindis lúðu ala Eydís (Gummi grillaði), kíktum í sund á meðan Gummi þjálfaði, skoðuðum rústir af klaustri þar sem mannabein stóðu út úr veggjum, og gengum náttúrulega um miðbæinn. Kvöddum þau svo á fimmtudaginn síðasta og héldum til Köben.
Á miðvikudaginn ætlum við svo til Svíþjóðar þar sem við byrjum á að heimsækja Inguló frænku Ástu í Uppsala.

Er Svíþjóð síðasta stoppið eða hver verður svo haldið ?
Hlakka til að hitta ykkur.
K.kv. Ásdís
Kveðja Ragnar
Þið eruð algjörar lúxusgellur, að geta rúntað svona á milli vina og ættingja um all Norður Evrópu!!!! Hvernig ætlið þið að meika það að koma heim, ef þið þolið ekki einu sinni að fara í HogM í köben.......... Eigum við að tala útlensku við ykkur fyrstu dagana???
Kysstu uppáhalds frænku mína og foreldra hennar frá mér þegar þið komið í gamla bæinn ykkar, Uppsala................
kv. Unnur
Ástar kveðjur Anna og Oddný